
Markmiðið er að vekja áhuga nemandans og örva skapandi hugsun. Helstu undirstöðuatriði í teiknun, málun og mótun kynnt og verk unnin út frá manneskjunni, náttúrunni og nánasta umhverfi. Listasagan höfð að leiðarljósi. Nemendur skoða form og litasamsetningar, áhersla lögð á ólíka tækni og að vinna með fjölbreytt efni.