
Í upphafi námskeiðs verður áhersla lögð á teikningu og grunnatriði. Ýmis verkefni verða lögð fyrir sem æfa hlutföll, form og skilning á ljósi og skugga. Því næst verður unnið eitt lengra verkefni. Teiknaðar verða uppstillingar og einstakir hlutir með áherslu á myndbyggingu. Í framhaldi af því geta nemendur gert vinnuteikningu og málað eftir henni. Farið verður í grunnþætti teikningar og málunar í öllu ferlinu.


