
Á námskeiðinu vinna nemendur verkefni sem miða að því að auka færni og skilning á grunnþáttum málverksins; litablöndun, málunartækni, myndbyggingu. Jafnframt vinna nemendur með eigin hugmyndir að myndverkum; þeir skissa, taka ljósmyndir og gera tilraunir með myndbyggingu, útfærslur og aðferðir. Nemendur skoða og ræða verk, aðferðir og nálgun ólíkra starfandi listmálara.

