
Hópurinn er blanda af byrjendum og lengra komnum og áhersla er á að kynnast því að mála með olíulitum. Við skoðum litablöndun, myndbyggingu og að velja myndefni. Gott er að nota myndavélina til að fanga hugmyndir og rannsaka myndefni. Í upphafi annar er lagt inn verkefni sem nemendur geta útfært á mismunandi vegu. Þetta er einstaklingsmiðað nám og lagt upp með vinnugleði og góðan anda.

