
Nemendur læra að tileinka sér nokkrar aðferðir leirmótunar t.d. kúluaðferð, plötuaðferð og pulsuaðferð og fá tækifæri til að prófa að renna á rennibekk. Nemendur vinna eitt verk út frá eigin hugmynd í lokin. Lögð áhersla á hugmyndavinnu í öllum verkefnum. Gerðar tilraunir með glerunga og reykbrennslu.