
Markmið þessa námskeiðs er að bjóða upp á ferska kynningu á vissri málunartækni gömlu meistaranna. Mestur hluti tímans mun fara í verkefnavinnu. Til þess að styðja enn frekar við verkefnin verða einnig fyrirlestra- og umræðutímar. Tækni Gömlu Meistaranna veitti þeim aukna stjórn og meiri yfirvegun í vinnu sinni og þess vegna er markmið námskeiðsins að sú þekking sem nemandinn fari með heim muni færa honum sömu auknu stjórn og jafnvægi í listrænni vinnu sinni í framtíðinni. Kennslan fer fram á ensku.