
Námskeiðið er sniðið að þörfum þeirra sem hafa áhuga á að mála sjálfstætt en vilja hafa aðgang að samtali og leiðsögn frá kennara. Nemendur hafa aðgang að vinnustofu og reglulega er kennari með viðveru og veitir einstaklingsviðtöl og ráðgjöf. Mikilvægt er að nemendur geti unnið sjálfstætt.
