
Námskeiðið er fyrir þá sem vill þróa sig áfram í sinni myndlist á persónulegan og ögrandi hátt. Málunarferli hvers og eins skoðað með uppbyggilegu sjónarmiði. Ýmis tæknileg atriði skoðuð og rædd, fjölbreyttar aðferðir og notkun lita og verkfæra. Farið verður í mörg fleiri praktísk atriði við málverkið og málunarferlið. Hugmyndir, hugmyndavinna, skissugerð og annar undirbúningur eru m.a. hluti af þvi. Unnið verður að þessu í gegnum skemmtileg verkefni og eigin verkefni nemendanna.